. - Hausmynd

.

Keppulögin!

 

Maður verður þunglyndur á að hlusta á fréttir.  Kreppa hér og kreppa þar.  Mig langar til að vera gæinn sem er að græða á þessari kreppu.... því ef þetta hefur allt verið gert löglega og eftir bókinni þá hljóta peningarnir að fara eitthvert..... eða var þetta kannski bara bókfært eigið fé, bókfærður hagnaður og allar eignir metnar og veðsettar langt langt langt fyrir ofan réttan prís? 

Eftir að hafa fylgst allt of mikið með fréttum i síðustu viku bað dóttir mín þriggja ára mig um að stilla á útvarp Latibær þegar við vorum á leið í bæinn á föstudag.  Þetta varð til þess að ég mætti í skólann með bros á vör.  Ég tel að Latibær sé það eina sem getur komið til bjargar.  Barnaleg lög í útvarpinu og ég held að við gætum skipt út krónunni fyrir Lató seðla.  Held að Lató hagkerfið sé það eina sem virkar í augnablikinu. 

En að öðrum lögum ólöstuðum hef ég ákveðið að birta lista yfir 8 bestu lögin til að hlusta á í kreppunni..... Látið vita ef ykkur dettur eitthvað annað í hug.  Ég skora á alla til að velja sér 3 af þessum 10 lögum, loka augunum eða stara út í loftið og gá hvort ykkur líður ekki betur eftir þetta.

8.  Everybody needs somebody to love -- Blues Brothers

7.  The Penis Song - Monty Python

6.  Paul Simon - You can call me Al.


5.  What a wonderful world - Louie Armstrong

4.  Wake me up before you go-go -- Wham, skoðið þetta, þó það sé bara fyrir myndbandið.

3.  Don´t worry, be happy e. Bobby Mcferrin

2.  Daydream Believer - The Monkees

1.  Always look on the bright side of life --  Monty Python


Sparnaðarleiðir í kreppunni...

Mér varð svo um þegar ég las bloggið hans Adda um sparnaðarráð námsmanna.  Þannig að ég fór að hugsa og velta fyrir mér og leita að öðrum möguleikum.... 

Listinn er kannski ekki jafn fagurfræðilegur og listinn hans Adda... en möguleikar... möguleikar.

 

08. -- Slökktu á sjónvarpinu og öllum ljósunum til að spara rafmagn.  Segðu svo krökkunum að þetta sé feluleikur og þau eigi að fela sig.... ró og friður og sparnaður.

07. --- Taktu greninálar og strjúktu þeim undir handarkrikan á sjálfum þér.... þá þarftu ekki lengur að kaupa þér svitalyktaeyði.  önnur leið væri einnig að fá lánaðan tannbursta hjá nágrannanum... hann myndi allavega ekki vilja fá hann aftur.

06. --- Yfirleitt gerist ekkert í fyrri hluta kvikmyndar.... Reyndu að tímasetja mætinguna í bíó á hléið.  Þá laumar þú þér bara inn með reykingarfólkinu.... og sérð restina af myndinni.  Góð leið er líka að spyrja sessunautinn hvað gerðist á síðasta klukkutíma.

05. --- Það er dýrt að kera bíl..... í stað þess að aka strax af stað, reyndu að fá skóla eða vinnufélagana til þess að hjálpa þér að starta bílnum með því að ýta honum svona 100 m eða svo.

04. --- Lærðu hraðlestur.... og lestu námsbækurnar á opnunartíma í bóksölu stúdenta.

03. --- Eyddu tímanum á orkunni.... fylgstu með þegar menn klára að fylla bílinn sinn og keyra í burtu, ef þú ert nógu fljótur nærðu nokkrum dropum úr byssunni.  margt smátt gerir eitt stórt.

02. --- Taktu með þér stóran bakka og farðu inn í Hagkaup.  Náðu svo í Ritz kex pakka og nokkra osta.  Opnaðu ostana og kexið... bjóddu svo fólki að smakka.... Starfsfólkið heldur þá að þú sért þarna með ,,kynningu"

01. --- Ef þú vilt koma konunni þinni á óvart.... gefðu henni blóm....  Komdu bara við í kirkjugarði á leið heim úr skólanum eða vinnunni.... þar er alltaf verið að jarða fólk.... steldu bara af leiðinu en passaðu þig á því að taka samúðarkveðjuna af blómunum.

 

,,It's only after we've lost everything that we're free to do anything."  - Tyler Durden, Fight Club

mba0629l

 


Myndagáta.....

Myndagáta....

 Í kreppunni skiptir máli að reyna að einbeita sér að öðru... 

Hvaða lið er þetta?

1

2

3

  4

5  

 Stuð stuð stuð...

 By the way --- Heimildarmyndin "The King of Kong, a fistful of quarters!" er frábær....

 

 

 

 

 


Jessup og 80´s

80s-tech-2Jæja... Ég byrja á því að biðjast afsökunar á því að hafa ekki bloggað í svolítinn tíma.  Ég vona að það komi ekki að sök. 

Annars var frábært úti í Washington.  Þar náðust þrír sigrar á móti einu tapi - við í raun komumst ekki áfram á markatölu.  - en helstu afrek...

37. sæti á mótinu með 3 sigra og 1 tap.
7. sæti á meðal evrópuþjóða
1. sæti á meðal þjóða frá N-löndunum
Besti árangur sem íslenskt lið hefur náð frá landnámi.

Þá vorum við dugleg að breiða út fagnaðarerindi þess að íslenska ríkisstjórnin væri með sæti á álandseyjum.  Ég skora á hvern sem er að segja Åland Islands hratt þrisvar án þess að brosa. Aðrir árangrar sem náðust ----

*  Að ,,the right to bear arms" væri í íslensku stjórnarskránni - þó væri ákvæðið túlkað þannig að það gilti aðeins um sverð en ekki byssur.

*  Að okkur tókst að skála alltaf fyrir Byssum - því eins og allir vita þá jafngilda byssur frelsi.

*  Að það náðist að mótmæla komu utanríkisráðherra til Washington með skiltum sem sögðu ,,Þoturnar heim"  ,,BNA úr Nató"  ,,Árni Magg í Landsvirkjun"

*  Að sjá Jack Bauer á flugvellinum á JFK - Eggert guggnaði hinsvegar við að fá eiginhandaráritun JACKS í bókina ,,why terrorism works" - það hefði verið svalt.

 

En að öðru - hmm.... Arsenal er búið í ár ------ ekki góðar fréttir það - nú held ég með Barca í meistaradeild, eða þá hryðjuverkum.  Ég held að Wenger ÞURFI að kaupa góða leikmenn í sumar, enga kjúklinga - Arsenal er með salmonellu..... við þurfum stræker - almennilegan - eins og Torres - ekki eins og Adebayor sem er með jafngóða fyrstu snertingu og nauðgari.....  (þetta er bara of góð lína)....... 

Baldur er með skemmtilega getraun á sinni síðu ------ þarf að gera slíkt sjálfur.....

Annars langar mig til þess að halda 80´s partý ----- væri einhver stemming fyrir því að loknum prófum?  Bara svona til að koma mönnum í svoleiðis gír hendi ég inn þremur klassískum myndbrotum hér að neðan......  ég skora á ykkur að horfa á öll....

 

Jæja .... ER STEMMNING FYRIR 80´S TEITI??


Síðasti dagur riðlakeppni

Það er eitthvað lítið að segja núna.  Ekki það að það gangi eitthvað illa, frekar það að við erum öll orðin gríðarlega þreytt hérna.  Hér hafa reglulega verið teknir 18 tíma dagar fyrir kepnnir og núna eru 3 tímar í síðustu keppnina í riðlakeppninni.  24 stigahæstu liðin fara svo áfram.  Ekki býst ég endilega við því að við förum áfram. 

Í gærkvöldi fórum við í kokteil á lagaskrifstofur Sherman and Sterling..... það var spítalalegt.  Allt ofboðslega sterílt en samt gott útsýni.  Keyrðum fram hjá Húsinu hvíta hér í borg og furðuðum okkur á því að það er talsvert minna heldur en við áttum von á. 

Okkur gekk ágætlega með hollendingana í dag, en Eggert segir að sú keppni sé töpuð... ég er ekki sammála. Það er hinsvegar ótrúlegt hvað við mætum ,,enskumælandi" liðum.  Við áttum fyrsta daginn við Egypta.... kom í ljós að þetta var ameríski háskólinn..... Kanada maður og Ameríkani í því liði.  Svo var kalifornía í gær.... í morgun voru svo Hollendingar.... þar var ein hollenski í liðinu, ein belgísk og 2 bretar.... og ég þoli ekki breskan hreim... það skiptir ekki máli hvort þú sért að segja ,,mig langar í skeið af mæjónesi" það hljómar kurteist og fágað....  þannig var þetta í dag með þennan gæja.  Það er því augljóst að í liði tælendinga sem kunna ekkert að gera nema elda og sauma (nike skó, fótbolta osfrv) verða prófessorar í ensku.

Búið er að græja Go-national búninginn - lopapeysa og brennivín ----------  Vrikar vel.

Læt vita á morgun ef við komumst áfram.....

eitt að lokum...........  Þetta var ekki víti!

 


Og keppnin er hafin....

celebrities_female_113Jæja, hér er allt á fullu skriði.  Keppnin er hafin fyrir alvöru og við áttum leik í dag við Egypta, reyndar ameríska skólan í Kairo - þar sem var ein amerísk stelpa og Kanada maður að flytja fyrir þau.  Báðum liðum gekk bærilega.  Gríðarlega erfiðar spurningar frá dómurunum og voru allir keppendur kaffærðir í þeim spurningum.  Á morgun er svo keppni hjá Kára og Önnu Pálu við einhverja Kaliforníu hippa.... ég hef ekki trú á öðru en að þau standi sig vel.

Við drógumst semsé á móti Egyptum, Kaliforniu, Tælandi og Hollandi.  Maður hefur svo sem enga hugmynd um hversu góðir þessir skólar eru þannig að vð vöðum blint út í þetta.  Æfingar og undirbuningur hefur gengið vel, hér er unnið fram á nótt allar nætur og fólk farið að rífast um réttlætingarástæður pyndinga.

Liðið hjá okkur var skráð síðast í keppnina þar sem ekki var borgað fyrir skólan fyrr en 20 mín fyrir lokun... við erum því skóli nr. 637.....

Þegar það var verið að kynna öll liðin þá var þetta svona:

612 -  Kósóvó  (KLAPP KLAPP KLAPP og allt brjálað í salnum, blístur og ég veit ekki hvað)

637 -  University of Iceland (Klapp - næstum þannig að heyra mátti saumnál detta)

644 -  University of Iraq ----  (Gríðarlega mikið klapp, næstum jafn mikið og klappið sem Kosovó fékk)

Þannig að við vorum staðráðin í að standa okkur.  Við fáum þó ekki að vita nein úrslit fyrr en í síðasta lagi á laugardaginn.... þetta kemur í ljós.

Kári er kominn með Erkiovin - það er 12 ára strákur í liði Rússa...
Ég er kominn með erkióvin - það er hvíthærður 45 ára maður með tagl....
Davíð hatar lið Kósóvó....

Annars er margt búið að gerast hjá okkur.... ákveðnir hlutir sem við komumst að....

Eggert ratar ekki rassgat, jafnvel þó hann hafi verið hér í fyrra.
GPS tækið mitt ratar svipað vel og Eggert
Davíð hefur gengið í lið Króata þar sem hann fékk úthlutað nafnið DAVOD
Hér eru Starbucks kaffihús á hverju horni en við höfum ekki enn séð Mc D (Mc Donalds) og KFC
Anna Pála náði að borga rúmlega 2500 kr. fyrir það eitt að prenta út 12 bls..... hér er hótelinu um að kenna...... Það kostar allt og það er allt brjálaðislega dýrt.
Liðið hefur ákveðið að sækja um styrk hjá Dr. Pepper....

Unz síðar.....

AMERICA FUCK YEAH!


Dagur 1 í Washington...

Jæja, þá erum við komin heilu á höldnu til Washington.

Hér sit ég á fokdýru hóteli einhverstaðar í miðborg Washington.  Þetta var löng ferð.  Við vorum mætt út í Leifstöð um það bil 3 í gær.  Þar byrjaði ferðin á því að Anna Pála komst að því að hún hafði gleymt veskinu sínu heima.  Þannig að mamma hennar keyrði Reykjanesbrautina á 120 til að koma veskinu til skila..... sem tókst.  Flugið sjálft var tilþrifalítið, eins og flug eru nú flest.  Við lendum i NY sití 6,5 klukkustundum síðar.... Þá var farið í það að labba milli terminala og taka tengiflugið. 

Þegar við biðum í öryggisleitinni var Davíð beint fyrir aftan mig.  Þá allt í einu kemur heil rapphljómsveit sem var sett af starfsmanni flugvallarins fyrir framan Davíð og þá fyrir aftan mig.  Þessar ,,elskur" sem tróðu sér þarna, og voru m.a. allir um 190 á hæð og svona 110 kg.   Fara þessir menn að klæða sig úr öllu því bling blingi sem þeir höfðu á sér og litlu plastkassarnir fylltust af hálsmenum, hringum, úrum og fleiri skartgripum, risastórum gsm símum, ipodum ofl.  Þá voru beltin eftir... um leið og þessir vinir okkar... sem við værum viss um að væru nördar að fara að keppa í Jessup... Þegar beltin eru komin af þá eru allar buxur á hælunum. 

Ég gat ekki annað en hlegið en hló í hljóði vegna hræðslu við að vera laminn/stunginn/skotinn í rappbardaga milli USA og Íslands.   Þegar öllu þessu er lokið ,,bætist við það kíló hveiti..."  Þá fórum við og fengum okkur einn sveittan borgara og vatnskenndan amerískan bjór... sem minnti mig á það afhverju bandarískur bjór er eins og að gera það í kanó  ---- Fucking close to water...  Þar kom fram sú hugmynd að halda því alltaf fram að við töluðum ensku á Íslandi, að hún hljómaði bara öðruvísi.  Þegar þetta var búið var farið í það að bíða eftir vélinni sem var í klukkutíma seinkun.... stuð....

Fórum í loftið um 11:30 að bandarískum tíma með flugfélagi sem heitir Jet Blue.... sem er lággjaldaflugfélag.... en með gervihnattasjónvarpi þannig að það voru 30 stöðvar í boði beint fyrir framan mann, þetta var æði.  Þá var fótaplássið eins og best lætur.  Ég mæli því með Jet Blue.

 Hvernig kemur maður 5 laganemum í venjulega Ford Escape?  3 aftur í 2 frammí.... ég var semsé einn af þeim sem var frammí - óþægilega nálægt bílstjóranum og fannst ég hálfpartinn vera að stýra bílnum með honum.  En hér í Washington þá eru flottar götur...  Götunöfn eins og Stjórnarskrárstræti (Constitution Avenue) og Frelsisgata (Freedom Str).  Afhverju er ekki svona á Íslandi.  Svona götunöfn fá mann bara til að standa upp, blása í herlúðra og syngja þjóðsönginn.  (örlítil kaldhæðni hér á ferðinni).... 

En hér er ég, vaknaður eftir fjögurra tíma svefn, þarf að vinna massíft í ræðunni minni í dag.  Endurskoða og breyta. endurskoða og breyta. endurbreyta og skoða.  Staðan er 1-0 fyrir liverpool... Ég þoli ekki að tapa fyrir Liverpool....

Þar til næst.... Good night and good luck.


$ hell

Shell_Hell  Bensínið var lækkað um 25 kr. í gær á N1.... Svo lækkaði það allstaðar annarsstaðar nema á hell, ég meina Shell. 

Ég ákvað að versla við þann sem var fyrstur að lækka, þ.e. N1.  Gott framtak.  Ég er hinsvegar að velta þessu fyrir mér með Shell.  Hvort var þetta ömurlegt hjá þeim að sleppa því að lækka eða var þetta úthugsað plan.  Er SHELL að bíða eftir því að allir klári bensínið og lækki í næstu viku?  Það væri náttúrlega frábært.... þá gæti kannski komist á álvöru samkeppni.  Glætan að það gerist. Ég vona allavega að þeir geri það.  Annars vísa ég bara í pistil minn um Ólíufélögin hér fyrir neðan.

Ég mátti til með að henda þessu hérna inn.  Ég er að horfa á Kane eða Cain... man ekki hvort þetta er skrifað með C eða K.  Þeir eru úti á vatni í bát að dorga.... minnir um margt á atriðið í Godfather II....  Er þetta að fara að gerast..... nei.... komið nýtt atriði. 

Glætan spætan, langt síðan ég heyrði þetta.  Eða þá að eitthvað var ,,Speisað"... Tjúllað man einhver eftir einhverju öðru?

Annars er ég hrifinn af þessu hérna!


Washington - Dershowitz - Arsenal - Titanic

whitehouse_backWashington á morgun/eftir.  Flugið fer í loftið rétt eftir kl. 17.  Ég hlakka til, ég er stressaður, ég á eftir að gera verkefni, ég þarf að vinna betur í ræðunni osfrv osfrv osfrv.

Hvað á að gera þarna úti?  Verður maður ekki að kíkja á þetta hvíta hús, Lincon osfrv.  Ég er svona að vona að við fáum inn í sendiraðið, það gæti verið ágætt. 

Arsenal - Liverpool ------- Ég held barasta að ég hafi ekki áhyggjur af seinni leiknum.  Mér fannst Arsenal svo áberandi betri í þessum leik að það er alveg ótrúlegt.  Ef það væri ekki fyrir hollenskan dómara og stórkostlegan varnarmann að nafni Bendtner þá væri staðan 3-1 í þessum leik.  Gerrard sást bara í markinu, Torres gat ekki rassgat, Alonzo átti ekki eina ,,attacking pass" eins og kom fram.  Carra og Kuyt voru klárlega bestu menn Pool.  Því miður þá var á stundum eins og Arsenal væri að spila með 10 menn á móti 11 eða 12.....  Eboue er bara fáviti, hann getur ekkert..... Missir boltann trekk í trekk og getur ekki rassgat...  Takið t.d. eftir honum í markinu hjá pool - hann er sá sem hættir að elta gerrard...  Þetta var hinsvegar mark gærkvöldsins!   Ég held að það verði erfitt fyrir Tyrkina í London, en ég vona samt að þeir slái Chelsea úr leik... mikið vona ég það.... 

Fór á fyrirlestur í dag.  Alan Dershowitz er á landinu.  Fyrir þá sem ekki vita þá er þetta lögmaðurinn sem varði O.J.  Djöfull er gaman að horfa á svona kalla tala, hann kunni þetta, fyrirlestur í 1 og hálfan tíma og hann leit aldrei niður á blaðið.  Svo var hann skemmtilegur, með dæmisögur, klípusögur osfrv.  Gríðarlega skemmtilegur gæi sem ég væri alveg til í að eyða kvöldstund með yfir bjór og fá að hlusta á skoðanir hans. 

Var að grafa upp tvö frábær myndbönd....  Skoðið í réttri röð...  Ef þú ert Ben Stiller og Vince Vaughn ,,fan" þá áttu eftir að fíla efra myndbandið sérstaklega.

Svo er það þetta..... THE SEQUEL

Jæja, góða helgi, ég reyni að koma með fréttir frá Washington...

Good night and good luck!


April´s Fool

Jæja...

Langt síðan að ég skrifaði síðast, reyndar er það bara fyrir þeirri tilstuðlan að ég er búinn að hafa brjálað að gera í verkefnaskilum.  Var núna í þessu að leggja lokahönd á verkefni í Lögskýringum.  Það var eiginlega smá pain, en ég nenni ekki að ræða það nánar.  Annars er margt búið að ske undanfarna daga.  Ég er t.d. orðinn F&M Orator, sem er fyrir þá sem ekki þekkja Funda og menningarmálastjóri Orator.  Þær kosningar fóru fram á föstudaginn og ég verð að þakka þeim sem studdu mig.  Það munaði aðeins 7 atkvæðum á mér og Ívari sem einnig var í kjöri.  Ívar er reyndar toppmaður sem ég hefði kosið ef ég hefði ekki verið í framboði. 

Þá vann Arsenal góðan sigur á Bolton um helgina, vonandi verður það til þess að sjálfstraustið fari í botn í þessum þríleik á móti Liverpool sem hefst á morgun.  Annars er bara þetta venjulega, ég vona að Pool, Chelski og Manure tapi sínum leikjum í meistaradeildinni. 

Apríl Gabb - nei, ég ætla ekki að vera með svoleiðis hérna á síðunni en þeir sem vilja hitta mig geta komið niður í kringlu kl. 3.  En mig langaði að benda ykkur á þau apríl göbb sem ég er búinn að taka eftir.... ég var næstum því búinn að gleypa við þessu gabbi hér... en mér fannst þetta gabb hér heldur langsótt. Ef einhver annar er með gabb, þá má alveg kommenta með það hér að neðan.

Washington á föstudag, í 8 daga útlegð.... ætli það sé ekki best að taka bækurnar með sér í þann pakka, þannig að maður geti allavega þóst læra þarna úti.  Verst finnst mér að hugsanlega missa af þessum arse-pool leikjum. 

Þar til næst.....  arrivadeci


Næsta síða »

Höfundur

Braginn
Braginn

,,When I am King you will be first against the wall"

 

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 6929

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband